U17 karla tapaði í vítakeppni gegn Færeyingum
U17 landslið karla lék í dag lokaleik sinn á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Færeyjum. Leikið var gegn heimamönnum um 7.-8. sæti mótsins. Hvort lið um sig skoraði eitt mark í fyrri hálfleik og þar við sat í markaskorun. Færeyingar höfðu svo betur í vítakeppni.
Fyrsta mark leiksins var færeyskt og kom strax á 7. mínútu. Íslenska liðið svaraði fyrir sig á þeirri 27. og var fyrirliðinn Samúel Kári Friðjónsson þar að verki. Lokatölur vítakeppninnar voru 5-4 fyrir Færeyinga og því er það hlutskipti Íslands á Norðurlandamótinu í ár að hafna í 8. og neðsta sæti.