Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Færeyjar
KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer á Laugardalsvelli miðvikudaginn 15. ágúst næstkomandi kl. 19:45.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu KSÍ á mánudag og þriðjudag milli kl. 10 og 16, gegn framvísun viðeigandi skírteina.
KSÍ vill hvetja fólk til að nýta tækifærið, koma á Laugardalsvöll, upplifa góða stemmningu og styðja við bakið á strákunum okkar í þessum vináttulandsleik.
Miðasala á leikinn er í gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
Við erum öll í íslenska landsliðinu!