• fös. 10. ágú. 2012
  • Landslið

Aðgöngumiðar á Ísland-Færeyjar fyrir handhafa A-passa

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Handhafar A-passa 2012 frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Færeyjar afhenta þriðjudaginn 14. ágúst frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir eru afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Hægt er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Athugið að takmarkað magn af miðum er í boði.

Leikurinn gegn fr´ændum okkar Færeyjum er síðasti vináttulandsleikurinn fyrir undankeppni HM 2014, sem hefst í september.  Leikurinn er að sjálfsögðu á Laugardalsvellinum miðvikudagin 15. ágúst og hefst kl. 19:45.

Miðasala á leikinn er í fullum gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.