Þjálfari ÍA áminntur vegna ummæla
Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ 8. ágúst 2012 var samþykkt að áminna Þórð Þórðarson þjálfara ÍA vegna ummæla hans í fjölmiðlum eftir leik ÍA og KR í Pepsi-deild karla sem fram fór 30. júlí og sekta jafnframt Knattspyrnudeild ÍA um kr. 25.000 vegna ummælanna.
Framkvæmdastjóri KSÍ vísaði ummælum Þórðar til aga- og úrskurðarnefndar í samræmi við 18. grein reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál.