• þri. 07. ágú. 2012
  • Landslið

Sjö breytingar á byrjunarliði U17 karla á NM

U17 landslið karla
ksi-u17karla

U17 landslið karla leikur annan leik sinn á Opna Norðurlandamótinu í dag og eru mótherjarnir U19 landslið Færeyinga, heimamanna, og fer leikurinn fram í Tóftum kl. 17:00 að íslenskum tíma.  Gunnar Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur gert 7 breytingar á byrjunarliði Íslands frá tapleiknum gegn Svíum í gær, sem þýðir að allir þeir leikmenn sem ekki byrjuðu gegn Svíum byrja í dag.

Byrjunarlið Íslands (4-4-1-1)

Markvörður

Hlynur Örn Hlöðversson

Hægri bakvörður

Baldvin Ingimar Baldvinsson

Vinstri bakvörður

Gunnar Logi Gylfason

Miðverðir

Samúel Kári Friðjónsson (fyrirliði) og Gauti Gautason

Miðtengiliðir

Kári Pétursson og Alexander Helgi Sigurðsson

Hægri kantmaður

Eiríkur Ari Eiríksson

Vinstri kantmaður

Ásgeir Sigurgeirsson

Sóknartengiliður

Kristinn Skæringur Sigurjónsson

Framherji

Magnús Pétur Bjarnason