Kristinn dæmir í Brussel
Kristinn Jakobsson verður við stjórnvölinn á miðvikudaginn þegar hann dæmir leik Anderlecht frá Belgíu og Ekranas frá Litháen. Leikurinn er fyrri leikur liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar UEFA og fer fram á Constant Vanden Stock vellinum í Brussel.
Kristni til aðstoðar í leiknum verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson og fjórði dómari verður Þóroddur Hjaltalín.