U19 karla - Efsta sætið á Svíþjóðarmótinu tryggt
Strákarnir í U19 gerðu í dag jafntefli í lokaleik sínum á Svíþjóðarmótinu og voru Norðmenn mótherjarnir. Lokatölur urðu 1 - 1 eftir að Norðmenn höfðu leitt í leikhléi. Jafnteflið dugði íslenska liðinu til að tryggja sér efsta sætið á þessu fjögurra þjóða æfingamóti en auk ofangreindra þjóða, eru Svíar og Rúmenar þátttakendur.
Íslendingar höfðu áður lagt Rúmena og heimamenn að velli en það voru Norðmenn sem komust yfir á 34. mínútu og leiddu í leikhléi. Íslendingar jöfnuðu hinsvegar muninn á 72. mínútu og þar var Atli Fannar Jónsson að verki.
Glæsilegur árangur hjá liðinu og verður gaman að fylgjast með þessum hóp í framtíðininni.