U19 karla - Góður sigur á Svíum
Strákarnir í U19 halda áfram góðu gengi sínu á Svíþjóðarmótinu en heimamenn voru mótherjarnir í dag. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Íslendinga eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.
Sigurinn var sanngjarn og sætur á Svíum en Elías Már Ómarsson kom Íslendingum yfir á 60. mínútu og Sindri Björnsson innsiglaði svo sigurinn á 80. mínútu. Íslenska liðið hefur því unnið báða leiki sína til þessa á mótinu en lokaleikurinn verður gegn Norðmönnum á laugardaginn kl. 11:00. Norðmenn lögðu Rúmena, örugglega, fyrr í dag með fjórum mörkum gegn engu. Jafntefli dugar íslenska liðinu til sigurs á þessu æfingamóti.