U16 kvenna - Frakkarnir reyndust sterkari
Stelpurnar í U16 töpuðu lokaleik sínum í riðlakeppni Opna Norðurlandamótsins sem fram fer í Noregi. Frakkar voru mótherjarnir og fór þeir með sigur af hólmi, 4 - 0, eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í leikhléi.
Franska liðið byrjaði mun betur og átti íslenska liðið í vök að verjast frá upphafi. Eftir stangarskot frá Frökkum þá komust þeir yfir á 27. mínútu og bættu við öðru marki aðeins þremur mínútum síðar. Þannig var staðan þegar flautað var til leikhlés og höfðu Frakkar áfram yfirhöndina í síðari hálfleiknum. Tvö mörk litu dagsins ljós í síðari hálfleiknum og komu þau á 68. og 70. mínútu. Íslenska liðinu gekk illa að byggja upp sóknir gegn sterku frönsku liði og marktækifærin frekar fá.
En framundan er svo leikur um 7. sætið á mótinu og fer hann fram á laugardaginn. Mótherjarnir verða Danir og gefst það tækifæri til að enda mótið á jákvæðan hátt.