Birna og Bríet dæma á Opna Norðurlandamótinu hjá U16 kvenna
Stelpurnar í U16 landsliðinu eru ekki einu fulltrúar Íslands á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Tveir íslenskir dómarar eru þar einnig en þetta eru þær Birna Bergstað Þórmundsdóttir og Bríet Bragadóttir.
Mótið fer fram í Norður Noregi og er leikið í tveimur riðlum, Íslendingar eru í riðli með Finnum, Svíum og Frökkum en í hinum riðlinum leika Þjóðverjar, Norðmenn, Danir og Hollendingar. Þetta mót verður því góð og mikilvæg reynsla fyrir þær Birnu og Bríeti.