Hittir einhver markslána í hálfleik á laugardag?
Í hálfleik á viðureign Íslands og Ungverjalands í undankeppni EM kvenna 2013, sem fram fer laugardaginn 16. júní, munu þrír heppnir vallargestir fá tækifæri til að spreyta sig í erfiðri en skemmtilegri þraut.
Þrautin felst í því að spyrna knetti frá vítateigsboganum (efst á boganum) með það fyrir augum að hitta þverslána. Hver og einn af þessum þremur fær aðeins eina tilraun, og vinningurinn ef það tekst er af glæsilegri tegundinni - ferð fyrir tvo til útlanda með Icelandair!
Þessir aðilar verða dregnir út af handahófi í gegnum miðasölukerfi Miða.is. Aðeins verður dregið úr seldum miðum, þannig að þeir sem fá miða eftir öðrum leiðum (heiðursstúka, fjölmiðlar, samstarfsaðilar KSÍ), verða ekki í pottinum.
Hverjir verða dregnir út?
Fylgist með ....