Byrjunarliðið gegn Svíum í kvöld
A landslið karla mætir Svíum í vináttulandsleik á Gamla Ullevi í Gautaborg kl. 18:15 að íslenskum tíma í dag, miðvikudag. Byrjunarlið Íslands hefur verið tilkynnt og eru gerðar tvær breytingar frá leiknum við Frakka á dögunum.
Helgi Valur Daníelsson kemur inn á miðjuna fyrir Eggert Gunnþór Jónsson og Ari Freyr Skúlason kemur í vinstri bakvörðinn fyrir Hjört Loga Valgarðsson. Leikaðferðin er sem fyrr 4-4-2.
Markvörður
Hannes Þór Halldórsson
Hægri bakvörður
Hallgrímur Jónasson
Vinstri bakvörður
Ari Freyr Skúlason
Miðverðir
Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson
Hægri kantur
Rúrik Gíslason
Vinstri kantur
Gylfi Þór Sigurðsson
Miðtengiliðir
Aron Einar Gunnarsson (fyrirliði) og Helgi Valur Daníelsson
Framherjar
Birkir Bjarnason og Kolbeinn Sigþórsson
Björn Bergmann Sigurðarson, Birkir Már Sævarsson, Bjarni Ólafur Eiríksson og Sölvi Geir Ottesen eiga við meiðsli að stríða og verða ekki með í kvöld.