Hjálmar ekki með gegn Frökkum og Svíum
Hjálmar Jónsson, leikmaður Gautaborgar, verður ekki með í vináttulandsleikjunum gegn Frökkum og Svíum sem fram fara 27. og 30. maí. Hjálmar þarf að draga úr hópnum vegna meiðsla. Ekki hefur verið kallaður inn nýr maður í hans stað.