A karla - Leikið við Andorra 14. nóvember
Knattspyrnusambönd Íslands og Andorra hafa komið sér saman um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Andorra 14. nóvember næstkomandi. Þessi leikur er hluti af samkomulagi knattspyrnusambandanna sem fól einnig í sér vináttulandsleik á Laugardalsvelli sem fram fór árið 2010.
Þegar leikið var á Laugardalsvelli fóru Íslendingar með sigur af hólmi, 4 - 0 en alls hafa þjóðirnar mæst fjórum sinnum og hafa Íslendingar haft sigur í öllum viðureignunum.
Næstu verkefni landsliðsins eru hinsvegar vináttulandsleikir gegn Frökkum 27. maí og Svíum 30. maí.