Fjör á Íslandsleikunum
Íslandsleikarnir voru samstarfsverkefni Knattspyrnusambands Íslands og knattspyrnufélagsins Víkings og fóru fram í tengslum við Evrópuviku UEFA og Special Olympics í Evrópu. Sex lið tóku þátt í mótinu, blönduð lið karla og kvenna.
Úrslit urðu eftirfarandi;
Flokkur Getuminni Flokkur getumeiri
1. sæti: Ösp 2 1. sæti: Ösp
2. sæti: Ösp 2. sæti:NES
3. sæti: NES 2
4. sæti: NES
Ólafur Þórðarson þjálfari meistaraflokks Víkings stýrði upphitun af mikilli röggsemi og mikil stemming ríkti í hópnum þegar keppni hófst. Í lok keppni fór fram verðlaunaafhending þar sem sem Reynir Leósson, knattspyrnumaður afhenti verðlaun ásamt Guðlaugi Gunnarssyni frá KSÍ. Samstarf við almenn knattspyrnufélög byggist ekki síst á því að tengja þjálfara og leikmenn við Íslandsleikana sem haldnir eru á hverju ári. Samstarf við Víking hefur einnig verið byggt á verkefninu ,, Unified football project" sem hófst á Íslandi í haust en markhópur var stelpur 12 ára og eldri. Stefnt er að því að kynna betur þetta verkefni hér á Íslandi en það felur í sér þátttöku fatlaðra og ófatlaðra og getur skapað tækifæri til framtíðar. Keppt er í ,,Unifiied football" á alþjóðaleikum Special Olympics og verkefnið hefur verið að ná miklum vinsældum í mörgum löndum.
Myndir eru á www.123.is/if