Úlfar Hinriksson ráðinn landsliðsþjálfari U17 kvenna
Úlfar Hinriksson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari U17 kvenna og tekur hann við starfinu af Þorláki Árnasyni. Þjálfunarferill Úlfars spannar 18 ár en hann var m.a. aðstoðarlandsliðsþjálfari A landsliðs kvenna og þjálfaði U21 landslið kvenna 2003 – 2004. Hann hefur undanfarið verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki sem og þjálfari 3. flokks. Einnig hefur hann verið aðstoðarlandsliðsþjálfari U19 kvenna síðan 2010.
Þorlákur tók við liðinu í lok árs 2008 og náði frábærum árangri. Komst m.a. með liðið á síðasta ári í úrslitakeppni EM þar sem fjögur lið tóku þátt og var liðið hársbreidd frá því að komast aftur í þessa keppni í ár.
Við bjóðum Úlfar hjartanlega velkominn til starfa og þökkum Þorláki fyrir góð störf.