U17 karla hefja leik á morgun
Strákarnir í U17 hefja á morgun, föstudaginn 4. maí, leik í úrslitakeppni EM U17 sem leikin verður í Slóveníu. Ísland er í riðli með Georgíu, Þýskalandi og Frakklandi og verður síðastnefnda þjóðin fyrstu mótherjar Íslands í riðlinum.
Sýnt verður frá nokkrum leikjum mótsins í beinni útsendingu á íþróttastöðinni Eurosport sem margir hafa aðgang að hér á landi. Meðal annars verður leikur Þýskalands og Íslands sýndur næstkomandi mánudag.
Þá er einnig ítarleg umfjöllun um mótið á heimasíðu UEFA, http://www.uefa.com/, þar sem textalýsing verður frá öllum leikjum mótsins.
Leikur Íslands og Frakklands á morgun hefst kl. 18:30 að íslenskum tíma en áður mætast Georgía og Þýskaland, eða kl. 16:30.