Knattspyrnuskóli KSÍ á Laugarvatni 2012
Eins og undanfarin ár starfrækir Knattspyrnusamband Íslands í sumar knattspyrnuskóla fyrir stúlkur og drengi. Í ár eru þetta iðkendur fæddir 1998.
Félög sem starfrækja 4. flokk drengja og/eða stúlkna geta tilnefnt einn dreng og eina stúlku hvert. Knattspyrnuskóli stúlkna verður 11. – 15. júní og Knattspyrnuskóli drengja verður dagana 18. – 22. júní
Verð fyrir hvern þátttakanda er kr. 16.000,- sem skal greiðast fyrir brottför (reikn. 0101-26-700400 kt. 700169-3679). Innifalið er gisting með fullu fæði, ásamt ferðum Reykjavík-Laugarvatn-Reykjavík.
Tilkynna þarf þátttöku á meðfylgjandi eyðublöð og senda til KSÍ fyrir 20. maí. Eftir þann tíma er litið svo á að viðkomandi félag ætli ekki að tilnefna þátttakanda í skólann.