Athygli vakin á breytingum á reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál
Á stjórnarfundi 8. mars síðastliðinn voru samþykktar breytingar á reglugerð um aga- og úrskurðarmál og hefur félögunum verið tilkynnt um þessa breytingu með dreifibréfi. Rétt er, nú þegar stutt er í að Íslandsmótin og Bikarkeppni hefja göngu sína, að vekja athygli á þessum breytingum.
Breytingar voru gerðar m.a. á 13. grein reglugerðar sem nefnist "Viðurlög við agabrotum". Viðurlögin er nú sem hér segir:
13.1. Viðurlög við agabrotum ákvarðast sem hér segir:
13.1.1. Leikmaður sem fær eftirfarandi fjölda áminninga á sama keppnistímabili skal úrskurðaður í leikbann sem hér segir:
- 4 áminningar – bann í 1 leik
- 7 áminningar – bann í 1 leik
- 10 áminningar – bann í 1 leik
- Þriðja hver áminning eftir það - bann í 1 leik
13.1.2. Leikmaður, sem vísað er af leikvelli einu sinni eða oftar á sama keppnistímabili, skal fara sjálkrafa í leikbann í næsta leik eða næstu leikjum sem hér segir:
- 1. brottvísun –sjálfkrafa bann í 1 leik
- 2. brottvísun – sjálfkrafa bann í 2 leiki
- 3. brottvísun – sjálfkrafa bann í 3 leik
- 4. brottvísun – sjálfkrafa bann í 4 leiki, o.s.frv.
Þá voru einnig gerðar breytingar á grein 6.2 í reglugerðinni og hljómar hún nú svona:
Nýtt ákvæði 6.2.
6.2. Leikmaður, þjálfari eða forráðamaður liðs sem fær brottvísun, eða sem dómari gerir skriflegar athugasemdir við, hefur heimild til að gera skriflega athugasemd við brottvísunina/ athugasemdina til aga- og úrskurðarnefndar til hádegis þess dags sem næsti reglulegi fundur nefndarinnar fer fram. Viðkomandi skal fá afrit gagna og koma með sínar athugasemdir strax eða innan þeirra tímamarka sem aga- og úrskurðarnefnd setur honum. Athugasemd þessi kemur ekki í veg fyrir að sá sem í hlut á fái sjálfkrafa leikbann, en getur haft áhrif varðandi þyngingu refsingar þegar mál er úrskurðað.
Greinargerð: Með ofangreindri breytingu er leikmönnum /þjálfurum/forráðamönnum /félögum gert auðveldara að nálgast atvikaskýrslu dómara.
Reglugerð um KSÍ aga- og úrskurðarmál
Dreifibréf til aðildarfélaga - Nr. 3