Ólöglegur leikmaður hjá Ými
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Stefán Ari Björnsson lék ólöglegur með Ými gegn Létti í Lengjubikar karla, þann 11. apríl síðastliðinn. Leikmaðurinn var skráður í HK.
Ýmir er því sektað um 30.000 krónur, og úrslit leiksins skráð 3 - 0.