A landslið kvenna - Byrjunarliðið gegn Belgum tilbúið
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Belgum í undankeppni EM á morgun, miðvikudaginn 4. apríl. Leikurinn hefst kl. 18.00 að íslenskum tíma og þarna eigast við tvær efstu þjóðirnar í riðlinum en efsta sæti riðilsins gefur beint sæti í úrslitakeppninni í Svíþjóð 2013.
Það er því um gríðarlega mikilvægan leik að ræða hjá stelpunum en fyrri leik þjóðanna, á Laugardalsvelli, lauk með markalausu jafntefli.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður: Rakel Hönnudóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir
Tengiliðir: Edda Garðarsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir
Hægri kantur: Fanndís Friðriksdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir