Vilhjálmur og Andri til Sviss
Tveir íslenskir dómarar eru á leiðinni til Sviss þar sem þeir sækja námskeið fyrir unga og efnilega dómara. Námskeiðið er á vegum UEFA og kallast “CORE” (Centre Of Refereeing Excellence). Er hér um að ræða áætlun um þjálfun og menntun dómara á aldrinum 25 - 30 ára. Íslendingarnir sem fara til Sviss eru dómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og aðstoðardómarinn Andri Vigfússon
Verða þeir í Sviss frá 28. mars til 5. apríl við þjálfun og kennslu auk þess sem þeir starfa við dómgæslu í deildarkeppni í Sviss.