U17 karla - Byrjunarliðið gegn Skotum
Strákarnir í U17 karla leika í kvöld annan leik sinn í milliriðli EM en leikið er í Skotlandi. Mótherjarnir í kvöld eru einmitt heimamenn en leikurinn hefst kl. 19:30 að íslenskum tíma. Íslendingar gerðu jafntefli við Dani í fyrsta leik sínum en Skotar lögðu Litháa og eru því á toppi riðilsins með þrjú stig.
Gunnar Guðmundsson landsliðsþjálfari U17 karla hefur tilkynnt byrjunarlið sitt og er það skipað sömu leikmönnum og hófu leikinn gegn Dönum.
Markmaður: Fannar Hafsteinsson.
Varnarmenn: Adam Örn Arnarson, Orri Sigurður Ómarsson, Hjörtur Hermannsson (F) og Ósvald Jarl Traustason.
Tengiliðir: Oliver Sigurjónsson, Emil Ásmundsson, Daði Bergsson, Stefán Þór Pálsson og Páll Olgeir Þorsteinsson.
Framherji: Kristján Flóki Finnbogason.
Minnt er á að hægt að fylgjast með textalýsingu frá leiknum á heimasíðu UEFA.