Úrslitakeppni EM U17 kvenna haldin á Íslandi 2015
Framkvæmdastjórn UEFA ákvað á fundi sínum á þriðjudag að samþykkja umsókn KSÍ um að halda úrslitakeppni EM hjá U17 kvenna. Mun hún því fara fram hér á landi árið 2015.
Fyrst var keppt í þessum aldursflokki á EM keppnistímabilið 2007/2008 og var því fyrsta úrslitakeppnin haldið árið 2008. Hingað til hafa allar úrslitakeppnirnar í þessum flokki farið fram í Nyon og hafa fjórar þjóðir leikið í úrslitakeppninni. Þar lék Ísland t.a.m á síðasta ári þegar stelpurnar höfnuðu í 4. sæti á EM.
Nú hefur UEFA ákveðið að stækka úrslitakeppnina í þessum aldursflokki og verða þjóðirnar 8 sem leika þar frá og með 2014 en þá verður keppnin haldin í Englandi. Íslendingar verða svo gestgjafar 2015 og Hvíta Rússland 2016. Úrslitakeppnirnar 2012 og 2013 verða hinsvegar undir yfirumsjón UEFA, haldnar í Nyon í Sviss og skipaðar fjórum þjóðum.
KSÍ hélt síðast úrslitakeppni EM árið 2007 þegar leikið var til úrslita hjá U19 kvenna hér á landi. Þá lögðu Þjóðverjar Englendinga í framlengdum úrslitaleik sem fram fór á Laugardalsvelli.