U17 kvenna - Danir lagðir að velli
Stelpurnar í U17 lögðu stöllur sínar frá Danmörku í dag í vináttulandsleik sem fram fór í Egilshöll. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir Ísland eftir að heimastúlkur leiddu 1 - 0 í leikhléi.
Danska liðið byrjaði leikinn heldur betur en þegar líða tók á hálfleikinn náði íslenska liðið yfirhöndinni og Svava Rós Guðmundsdóttir kom liðinu yfir á 34. mínútu. Þannig var staðan í leikhléi og í síðari hálfleik jók Guðrún Arnardóttir muninn með marki á 67. mínútu. Danska liðið átti lokaorðið þegar þær minnkuðu muninn í uppbótartíma.
Góður sigur hjá íslenska liðinu en þjóðirnar mætast aftur á þriðjudaginn. Aftur verður leikið í Egilshöll og hefst leikurinn kl. 18:00.