U19 kvenna - Eins marks tap gegn Norðmönnum á La Manga
Stelpurnar í U19 töpuðu naumlega gegn stöllum sínum frá Noregi í dag. Leikurinn var vináttulandsleikur sem leikinn var á La Manga. Lokatölur urðu 1 - 2 fyrir Norðmenn eftir markalausan fyrri hálfleik. Elín Metta Jensen skoraði mark Íslands og minnkaði þá muninn í 1 - 2.
Síðasti leikur stelpnanna í ferðinni verður á fimmtudaginn en þá verður leikið gegn Englandi. Það verður lokaleikurinn í ferðinni sem er undirbúningur fyrir milliriðil EM sem leikinn verður í Hollandi, 31. mars - 5. apríl. Mótherjar Íslands þar verða, auk heimastúlkna, Frakkland og Rúmenía.