A kvenna - Kínverjar lagðir á Algarve
Íslendingar lögðu Kínverja í dag í lokaleik liðsins í riðakeppni Algarve Cup. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. Fanndís Friðriksdóttir skoraði sigurmarkið á 79. mínútu.
Það var ekki boðið upp á mörg marktækifæri í þessum leik en baráttan var mikil og hart barist um hvern bolta. Næst því að skora í fyrri hálfleiknum var Margrét Lára Viðarsdóttir en aukaspyrna hennar, utan af kanti, hafnaði í markstönginni. Reyndar kom íslenska liðið boltanum svo í netið hjá Kínverjum á lokamínútu fyrri hálfleiks en markið var dæmt af vegna brots á markverði Kínverja.
Eina mark leiksins kom svo á 79. mínútu og þar var Fanndís Friðriksdóttir á ferðinni. Fanndís, sem kom inná sem varamaður 15 mínútum áður, skoraði þá af öryggi eftir stungusendingu frá Hólmfríði Magnúsdóttur. Kínverska liðið bætti í sóknina undir lokin og sótti töluvert síðustu mínútur leiksins en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Sigurinn tryggir Íslendingum þriðja sætið í riðlinum og er því leikur gegn Danmörku, um 5. sætið, framundan á miðvikudaginn. Japan og Þýskaland leika til úrslita á mótinu og Bandaríkin og Svíþjóð leika um 3. sætið.