A kvenna - Byrjunarliðið gegn Kína
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Kínverjum á Algarve Cup á morgun, mánudaginn 5. mars. Leikurinn hefst kl. 15:30 að íslenskum tíma og er síðasti leikur Íslands í riðlakeppninni.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir
Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir fyrirliði og Elísa Viðarsdóttir.
Hægri bakvörður: Rakel Hönnudóttir.
Vinstri kantur: Greta Mjöll Samúelsdóttir
Miðjumenn: Sara Björk Gunnarsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir
Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Sóknarmenn: Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir
Íslenska liðið hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum til þessa, gegn Þjóðverjum og Svíum. Leikið verður um sæti, miðvikudaginn 7. mars.