Byrjunarliðið gegn Svartfellingum
Lars Lagerbäck, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir vináttulandsleikinn við Svartfjallaland á Pod Goricom-leikvanginum í Podgorica í dag. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og er þetta fyrsti knattspyrnulandsleikurinn milli þessara þjóða.
Byrjunarlið Íslands (4-4-2)
Markvörður
- Stefán Logi Magnússon
Hægri bakvörður
- Grétar Rafn Steinsson
Vinstri bakvörður
- Bjarni Ólafur Eiríksson
Miðverðir
- Ragnar Sigurðsson
- Sölvi Geir Ottesen (fyrirliði)
Hægri kantmaður
- Rúrik Gíslason
Vinstri kantmaður
- Emil Hallfreðsson
Miðtengiliðir
- Eggert Gunnþór Jónsson
- Kári Árnason
Framherjar
- Gylfi Þór Sigurðsson
- Birkir Bjarnason
Leikmönnum var kynnt byrjunarliðið á fundi í morgun, þar sem ítarlega var farið yfir taktík dagsins. Jafnframt var farið yfir leikmenn, leikaðferð og ýmsa aðra þætti varðandi svartfellska liðið.