Halldór Orri inn fyrir Theodór Elmar
Ein breyting hefur verið gerð á landsliðshópnum fyrir vináttulandsleikinn við Japan, sem fram fer í Osaka þann 24. febrúar. Theodór Elmar Bjarnason er meiddur og í hans stað kemur Halldor Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar í Garðabæ. Halldór Orri hefur ekki leikið landsleik.
Ferðalag liðsins hefst á þriðjudagsmorgunn kl. 05:30 þegar haldið verður frá KSÍ og hópurinn skilar sér á hótel í Osaka um kl. 11:00 að staðartíma í Japan, sem er kl. 02:00 að íslenskum tíma.