Hvöt, ÍBV og Víkingur fengu Grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA
Grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA voru veitt á 66. ársþingi KSÍ og voru þrjú félög sem fengu þau afhent. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum og eru þessir flokkar ákveðnir af UEFA.
Verðlaunin fengu eftirfarandi:
Grasrótarviðburður ársins – Hvöt fyrir Smábæjarleikana
Grasrótarviðburður stúlkna – ÍBV fyrir Pæjumót TM í Vestmannaeyjum
Grasrótarviðburður fatlaðra – Víkingur R fyrir Special Olympics og brautryðjendastarf í Unified knattspyrnu