Kosningar í stjórn á 66. ársþingi KSÍ - Framboðsfrestur runninn út
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests.
Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:
a. Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.
b. Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.
c. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
d. Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
e. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.
Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir þeim framboðum sem tilkynnt voru til skrifstofu KSÍ hálfum mánuði fyrir þing og eru þau birt í stafrófsröð.
Kosning formanns
Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður KSÍ til tveggja ára á 65. ársþingi KSÍ í febrúar 2011. Tveggja ára kjörtímabili Geirs sem formanns lýkur því á 67. ársþingi KSÍ árið 2013 og er því ekki kosið um formann nú.
Kosning í aðalstjórn
• Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 66. ársþingi KSÍ 11. febrúar nk.:
Í aðalstjórn
Lúðvík S. Georgsson Reykjavík
Jón Gunnlaugsson, ritari Akranesi
Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík
Rúnar Arnarson Reykjanesbæ
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til aðalstjórnar:
Einar Hermannsson Reykjavík
Gísli Gíslason Akranesi
Lúðvík S. Georgsson Reykjavík
Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík
Rúnar Arnarson Reykjanesbæ
Sigvaldi Einarsson Kópavogi
Unnsteinn Jónsson Akureyri
Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2013):
Gylfi Þór Orrason, varaformaður Reykjavík
Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri Reykjavík
Róbert Agnarsson Reykjavík
Vignir Már Þormóðsson Akureyri
Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga
• Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 66. ársþingi KSÍ 11. febrúar nk.:
Aðalfulltrúar landsfjórðunga
Jakob Skúlason Vesturland
Björn Friðþjófsson Norðurland
Valdemar Einarsson Austurland
Tómas Þóroddsson Suðurland
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til aðalfulltrúa landsfjórðunga:
Jakob Skúlason Vesturland
Björn Friðþjófsson Norðurland
Valdimar Einarsson Austurland
Tómas Þóroddsson Suðurland
Kosning varamanna í aðalstjórn
• Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 66. ársþingi KSÍ 11. febrúar nk.:
Varamenn í aðalstjórn
Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
Sigvaldi Einarsson Kópavogi
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík
Eftirtaldir gefa kost á sér sem varamenn í aðalstjórn:
Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
Jóhann Króknes Torfason Ísafirði
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík