Breyting á reglugerð - Bráðabirgðaákvæði vegna félagaskipta
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 25. janúar bráðabirgðaákvæði í reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga vegna félagaskipta og leikheimilda í deildarbikarkeppni (Lengjubikarnum) keppnistímabilið 2012. Bráðabirgðaákvæðið er svohljóðandi:
Ný grein 3.6. (Bráðabirgðaákvæði fyrir keppnistímabilið 2012).
Leikmaður sem er handhafi keppnisleyfis sem tekur gildi 22. febrúar 2012 hefur heimild til að taka þátt í deildarbikarkeppni KSÍ (Lengjubikarnum) með nýja félaginu frá og með þeim degi er keppnisleyfið er gefið út.
Greinargerð:
Deildarbikarkeppni KSÍ (Lengjubikarinn) hefst nú áður en félagaskiptagluggi opnar þann 22. febrúar. Þeim félögum er leika í deildarbikarnum áður en félagaskiptaglugginn opnar er með þessu gert kleift að leika með leikmenn sem hafa fengið útgefið keppnisleyfi sem tekur gildi 22. febrúar 2012. Rétt er að benda á að ekki er hægt að hefja félagaskiptaferli hjá leikmönnum sem eru að skipta um félag á milli landa, og fara í gegnum rafrænt félagaskiptakerfi FIFA (TMS), fyrr en 22. febrúar 2012. Keppnisleyfi er þó hægt að gefa út fyrr á leikmenn sem hafa félagaskipti á milli landa og þurfa ekki að fara í gegnum rafrænt félagaskiptakerfi (TMS), s.s. áhugamenn.