Fótbolti fyrir alla hefst að nýju 29. janúar
Fótbolti fyrir alla, fótboltaæfingar fyrir börn með sérþarfir, hefst að nýju sunnudaginn 29. janúar. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur til 11. mars. Að venju fara æfingarnar fram í Garðabænum, í íþróttamiðstöðinni Ásgarði.
Námskeiðið kostar einungis 3.000 krónur.
Skráning er á tölvupóstföngunum, yr@ish.is og gunnhildurj09@ru.is