KSÍ IV þjálfaranámskeið 20. - 22. janúar - Dagskrá tilbúin
KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið á höfuðborgarsvæðinu helgina 20.- 22. janúar. Dagskrá námskeiðsins má sjá hér að neðan.
Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem setið hafa KSÍ III þjálfaranámskeið og skilað verkefni af því námskeiði.
Skráning á KSÍ IV er í fullum gangi og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða með því að hringja í síma 510-2977.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa og fylgja skráningu:
- Nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Félag
Þátttökugjald er kr. 20.000. Hægt er að greiða á staðnum eða með því að leggja inn á reikning Knattspyrnusambands Íslands:
0101-26-700400
Kt. 700169-3679
Æskilegt er að fólk sem greiðir í heimabanka sendi kvittun í tölvupósti á dagur@ksi.is