Æfingabúðir A landsliðs karla í janúar
Lars Lagerbäck, þjálfari A landsliðs karla, hefur boðað 28 leikmenn til æfinga 12. - 14. janúar næstkomandi og fara allar æfingarnar fram í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Eingöngu er um að ræða leikmenn sem leika með liðum á Íslandi og í Skandinavíu.
Æfingahópurinn
- Ari Freyr Skúlason - Sundsvall
- Arnór Smárason - Esbjerg
- Birkir Bjarnason - Viking FK
- Birkir Már Sævarsson - Brann
- Bjarni Ólafur Eiríksson - Stabæk
- Björn Bergmann Sigurðarson - Lilleström
- Eiður Aron Sigurbjörnsson - Örebro
- Guðmundur Kristjánsson - Breiðablik
- Gunnar Heiðar Þorvaldsson - IFK Norrköping
- Hallgrímur Jónasson - Sönderjyske
- Hannes Þór Halldórsson - KR
- Haraldur Björnsson - Valur
- Haukur Páll Sigurðsson - Valur
- Helgi Valur Daníelsson - AIK
- Hjálmar Jónsson - IFK Göteborg
- Hjörtur Logi Valgarðsson - IFK Göteborg
- Indriði Sigurðsson - Viking FK
- Matthías Vilhjálmsson - FH
- Pálmi Rafn Pálmason - Lilleström
- Ragnar Sigurðsson - FCK
- Rúrik Gíslason - OB
- Skúli Jón Friðgeirsson - KR
- Stefán Logi Magnússon - Lillestrom
- Steinþór Freyr Þorsteinsson - Sandnes Ulf
- Sölvi Geir Ottesen Jónsson - FCK
- Theódór Elmar Bjarnason - IFK Göteborg
- Veigar Páll Gunnarsson - Vålerenga
- Þórarinn Ingi Valdimarsson - ÍBV
Æfingarnar eru utan landsleikjadaga og því er þátttaka leikmanna háð samþykki félagsliða þeirra. Aðeins tveir leikmenn sem Lagerbäck óskaði eftir gátu ekki tekið þátt í æfingabúðunum vegna verkefna með sínu félagsliði, þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson, sem leika með Hönefoss í Noregi, en lið þeirra er í öðru verkefni einmitt á þessum tíma.