Dregið í forkeppni EM hjá U17 og U19 karla
Í dag var dregið í forkeppni EM 2012/2013 hjá U17 og U19 karla og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum UEFA. Hjá U17 er Ísland í riðli með Portúgal, Noregi og Möltu og fer riðillinn fram á Möltu, 29. september til 4. október. Leikið verður í Króatíu hjá U19 og er Ísland þar í riðli með heimamönnum, Georgíu og Aserbaídsjan. Sá riðill fer fram dagana 26. - 31. október.