Styrkleikalisti FIFA - Ísland upp um fjögur sæti
Á nýjum styrkleikalista, sem birtur var í morgun, er íslenska karlalandsliðið í 104. sæti listans og fer upp um fjögur sæti frá síðasta lista. Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans en á eftir koma Hollendingar og Þjóðverjar og er lítill munur á milli þeirra.
Af mótherjum Íslendinga í undankeppni HM eru Sviss þar efstir á blaði, eru í 17. sæti. Noregur og Slóvenía koma þar næstir en þau eru í 25. og 26. sæti listans. Albanía er í 75. sæti og Kýpur í 126. sæti.