• þri. 15. nóv. 2011
  • Landslið

Dregið í undankeppni hjá U17 og U19 kvenna fyrir 2012/2013

Byrjunarlið Íslands gegn Austurríki í undankeppni EM, október 2011
2011-U17-kvenna-Byrjunarlid-gegn-Austurriki-7.-oktober

Í dag var dregið í undankeppni hjá U17 og U19 kvenna en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Sviss.   Íslenska U17 liðið er í riðli með Tékklandi, Eistlandi og Slóveníu og verður leikið í Slóveníu 6. - 11. september 2012.

Stelpurnar í U19 eru í riðli með Danmörku, Moldavíu og Slóvakíu.  Riðillinn verður leikinn dagana 20. - 25. október í Danmörku.