Dregið í milliriðla hjá U17 og U19 kvenna
Í dag var dregið í milliriðla EM hjá U17 og U19 kvenna en Ísland var í pottinum hjá báðum aldursflokkum. Hjá U19 er Ísland í riðli með Frakklandi, Rúmeníu og Hollandi en Ísland var í öðrum styrkleikaflokki í þessum drætti. Leikið verður dagana 31. mars til 5. apríl í Hollandi.
Hjá U17 var Ísland í fjórða styrkleikaflokki og leikur í riðli með Sviss, Englandi og Belgíu. Leikið verður í Belgíu dagana 13. - 18. apríl.