Dregið í milliriðla hjá U17 og U19 kvenna
Dregið verður í milliriðla hjá U17 og U19 kvenna í höfuðstöðvum UEFA, þriðjudaginn 15. nóvember. Ísland er í pottinum hjá báðum aldursflokkum en milliriðlarnir verða leiknir í apríl á næsta ári.
Ísland er í fjórða styrkleikaflokki hjá U17 kvenna en í öðrum styrkleikaflokki hjá U19. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu af drættinum á heimasíðu UEFA, http://www.uefa.com/. Drátturinn hjá U19 hefst kl. 10:45 að íslenskum tíma en hjá U17 kl. 11:30.