U17 kvenna - Írunn og Lára í liði mótsins
Þær Írunn Þorbjörg Aradóttir og Lára Kristín Pedersen voru valdar í lið mótsins eftir úrslitakeppni EM U17 kvenna en úrslitakeppnin fór fram í Sviss í sumar. Það er tækninefnd UEFA sem sér um að velja lið mótsins og birtir niðurstöðurnar í skýrslu sem kom út á dögunum.
Tækninefndin velur hóp 22 leikmanna sem léku í úrslitakeppninni og eru Írunn og Lára vel að því komnar að vera í þessum hópi. Það eru Evrópumeistarar Spánverja sem eiga flesta leikmenn í þessum hópi, eða 9 talsins.