U19 karla - Leikið gegn Kýpur í dag
Strákarnir í U19 leika í dag annan leik sinn í undankeppni EM en leikið er við heimamenn í Kýpur. Leikurinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma og er hægt að fylgjast með leiknum með textalýsingu á heimasíðu UEFA. Þetta er annar leikur liðsins í .undankeppninni en liðið tapaði gegn Lettum í fyrsta le.iknum, 0 - 2.
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla hefur tilkynnt byrjunarliðið og má sjá það með því að smella á tengilinn hér að neðan.
Síðasti leikur liðsins verður svo á mðivikudaginn þegar leikið verður gegn Norðmönnum en Noregur og Lettland mætats einnig í dag.