U19 karla - Leikið við Letta í dag
Strákarnir í U19 eru nú staddir á Kýpur en þar leika þeir í undankeppni EM. Fyrsti leikur Íslands er í dag þegar þeir mæta Lettum og hefst sá leikur kl. 12:00 að íslenskum tíma. Í hinum leik riðilsins mætast Noregur og Kýpur.
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn og er það þannig skipað.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Bergsteinn Magnússon
Hægri bakvörður: Aron Grétar Jafetsson
Vinstri bakvörður: Ívar Örn Jónsson
Miðverðir: Hjörtur Hermannsson og Hörður Björgvin Magnússon
Tengiliðir: Arnór Ingvi Traustason, Arnar Bragi Bergsson og Björgvin Stefánsson
Hægri kantur: Emil Pálsson
Vinstri kantur: Ingólfur Sigurðsson
Framherji: Bjarni Gunnarsson
Hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum á heimasíðu UEFA.