U17 kvenna - Sigur í fyrsta leik
Stelpurnar í U17 unnu Austurríki í fyrsta leik sínum í undankeppni EM. Riðillinn er leikinn í Austurríki og því dýrmætur sigur á heimastúlkum í höfn. Lokatölur urðu 2 - 1 Íslendingum í vil.
Eftir markalausan fyrri hálfleik þá var það Lára Einarsdóttir sem kom Íslendingum yfir eftir fimm mínútur í seinni hálfleik. Svava Rós Guðmundsdóttir bætti við öðru marki Íslands, sex mínútum síðar. Heimastúlkur minnkuðu muninn þegar um 15 mínútur lifðu leiks en þar við sat.
Í hinum leik riðilsins voru það Skotar sem lögðu Kasakstan með þremur mörkum gegn engu. Ísland mætir Kasakstan á sunnudaginn í öðrum leik liðsins í undankeppninni.