U21 karla - Englendingar höfðu betur í Laugardalnum
Englendingar fóru með þrjú stig og þrjú mörk úr Laugardalnum í kvöld þegar þeir mættu Íslendingum í undankeppni EM. Lokatölurnar urðu 0 - 3 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 0 - 2. England hefur því 6 stig í riðlinum eftir tvo leiki en íslenska liðið er með 3 stig eftir þrjá leiki.
Fyrirfram var búist við erfiðum leik sem kom svo á daginn. Enska liðið var firnasterkt og hafði undirtökin í leiknum. Mörkin voru af ódýrari gerðinni og enska liðið skapaði sér ekki mörg færi umfram þau.
Norðmenn lögðu Aserbaídsjan í kvöld á útivelli í sama riðli, 2 - 0. Norðmenn eru því með jafnmörg stig og England en þeir ensku eru í efsta sæti riðilsins með hagstæðara markahlutfall.
Næsti leikur íslenska liðsins er einmitt gegn Englendingum en sá leikur fer fram fimmtudaginn 10. nóvember. Sá leikur fer fram í Colchester.