• fim. 06. okt. 2011
  • Landslið

U17 kvenna - Byrjunarliðið er mætir Austurríki

UEFA EM U17 kvenna
WU17_Landscape_Master_White_cmyk-01

Stelpurnar í U17 leika sinn fyrsta leik í undankeppni EM á morgun, föstudaginn 7. október.  Riðillinn er leikinn í Austurríki og eru heimastúlkur einmitt fyrstu mótherjar liðsins.  Hin liðin í riðlinum eru Kasakstan og Skotland.

Þorlákur Árnason, landsliðsliðsþjálfari U17, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn og er það þannig skipað:

Markvörður: Lísbet Sigurðardóttir

Hægri bakvörður: Berglind Rós Ágústsdóttir

Vinstri bakvörður: Ella Dís Thorarensen

Miðverðir: Ingunn Haraldsdóttir og Guðrún Arnardóttir 

Tengiliðir: Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði,Sandra María Jessen og Lára Einarsdóttir

Kantmenn: Telmar Þrastardóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir

Framherji: Hanna Hannesdóttir

Hægt er að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA en leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma.