Þjálfarastyrkir ÍSÍ 2011
ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir árið 2011. Styrkirnir eru ætlaðir fyrir þá sem hafa sótt eða munu sækja námskeið eða aðra menntun erlendis á árinu 2011. Umsóknir verða að berast á sérstöku eyðublaði sem finna má á isi.is og sendist á ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík, merkt "þjálfarastyrkir".
Umsóknarfrestur er til og með 14. október næstkomandi. Frekari upplýsingar um þjálfarastyrki ÍSÍ gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs á vidar@isi.is eða í 460-1467.