Frítt fyrir börn, öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland – England
KSÍ býður börnum 16 ára og yngri, öryrkjum og ellilífeyrisþegum, ókeypis aðgang að landsleik Íslands og Englands í undankeppni EM U21 karla sem fram fer á Laugardalsvelli fimmtudaginn 6. október kl. 18:45.
Börn yngri en 16 ára þurfa ekki að fá miða heldur er nóg að mæta á völlinn. Það sama má segja um öryrkja og ellilífeyrisþega sem fá aðgang með því að sýna viðeigandi skírteini við innganginn
KSÍ vill hvetja fólk til að nýta tækifærið, koma á Laugardalsvöll og styðja við bakið á strákunum okkar í þessum mikilvæga leik í undankeppni EM.
Miðasala á leikinn er í gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is og er miðaverð 1.000 krónur fyrir fullorðna, 17 ára og eldri.