U17 kvenna - Eva Lind kemur inn í hópinn
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum er tekur þátt í undankeppni EM. Þorlákur hefur valið Evu Lind Elíasdóttur, Selfossi, í hópinn og kemur hún í stað Elínar Mettu Jensen úr Val.
Riðillinn verður leikinn í Austurríki, dagana 7. - 12. október og verður leikin gegn Kasakstan, Skotlandi og Austurríki.